Google Pixel 9a kemur með 6,3 tommu P-OLED skjá með 1080 x 2424 upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni. Síminn er knúinn af Google Tensor G4 örgjörva og er með 8GB af vinnsluminni ásamt 256GB geymslupláss. Pixel 9a er með tvær myndavélar að aftan: 48MP aðalmyndavél og 13MP víðlinsu (120°). Að framan er 13MP sjálfumyndavél.
Rafhlaðan (5100mAh) er stærsta rafhlaða í pixel síma til þessa og styður bæði hraðhleðslu og þráðlausa hleðslu. Pixel 9a er einnig með IP68 vatns- og rykvörn. Pixel 9a er með 7 ára hugbúnaðarstuðning.
Gemini AI gervigreind
Pixel 9a kemur með Gemini AI, innbyggð gervigreind sem gerir símanotkunina enn betri. Gemini getur hjálpað þér að skrifa, skipuleggja, læra og framkvæma verkefni. Þú getur fengið hugmyndir, skrifað sögur og skipulagt stór verkefni, viðburði eða ferðir. Gemini býður einnig upp á háþróaða myndvinnslu, þar á meðal Photo Unblur sem skerpir á óskýrum myndum. Með Gemini getur þú fengið upplýsingar um það sem þú sérð í raunveruleikanum með því að taka mynd og fá hjálp beint úr myndinni






