Samsung Galaxy Tab S11 5G 256GB – Öflug og glæsileg spjaldtölva fyrir vinnu og afþreyingu
11″ Dynamic AMOLED 2X HDR10+ skjár (1600*2560) með 120Hz endurnýjunartíðni skilar ótrúlega mjúkum hreyfingum, djúpum litum og skörpum smáatriðum. Hvort sem þú ert að horfa á kvikmyndir, vinna í skjölum eða teikna með S Pen, þá færðu framúrskarandi myndgæði.
Mjög öflugur Dimensity 9400 örgjörvi, 256GB geymsla og 12GB vinnsluminni tryggja hraða og hnökralausa notkun.
Með 5G stuðningi geturðu unnið og streymt á ferðinni með miklum hraða og lítilli bið. Fullkomið fyrir þá sem vilja vera tengdir án þess að treysta eingöngu á Wi-Fi. S Pen fylgir og er tilvalið fyrir minnispunkta, teikningar og nákvæma vinnu. Þunn og létt hönnun gerir spjaldtölvuna þægilega í daglegri notkun, hvort sem er heima eða á ferðinni. 8400mAh rafhlaða sem endist mjög vel og styður hraðhleðslu.














