Google Pixel 9 kemur með 6,3 tommu OLED skjá með 1080 x 2424 upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni. Síminn er knúinn af Google Tensor G4 örgjörva og er með12GB af vinnsluminni og 128GB geymslupláss. Pixel 9 er með tvær myndavélar að aftan: 50MP aðalmyndavél með f/1.7 ljósopi og 48MP víðlinsu (123°) og Macro Focus. Myndavélarnar styðja Super Res Zoom upp að 8x og hristivörn (OIS og EIS). Að framan er 10,5MP sjálfumyndavél með Auto-HDR og panorama stillingum.
Gemini AI gervigreind
Pixel 9 kemur með Gemini AI, innbyggð gervigreind sem gerir símanotkunina enn betri. Gemini getur hjálpað þér að skrifa, skipuleggja, læra og framkvæma verkefni. Þú getur fengið hugmyndir, skrifað sögur og skipulagt stór verkefni, viðburði eða ferðir. Gemini býður einnig upp á háþróaða myndvinnslu, þar á meðal Photo Unblur sem skerpir á óskýrum myndum, og Add Me sem tryggir að enginn sé skilinn útundan á hópmyndum. Með Gemini getur þú fengið upplýsingar um það sem þú sérð í raunveruleikanum með því að taka mynd og fá hjálp beint úr myndinni
Rafhlaðan er 4700mAh og styður bæði hraðhleðslu og þráðlausa hleðslu. Með hraðhleðslu getur síminn náð 55% hleðslu á um 30 mínútum. Pixel 9 er einnig með IP68 vatns- og rykvörn.
Tækni | |
Skjástærð | OLED, 120Hz, HDR10+, 1800 nits (HBM), 2700 nits (peak) Size 6.3 inches, 94.7 cm2 (~86.1% screen-to-body ratio) |
Upplausn | 1080 x 2424 pixels, 20:9 ratio |
ppi | (~422 ppi density) |
Örgjörvi | Google Tensor G4 (4 nm) CPU Octa-core (1x3.1 GHz Cortex-X4 & 3x2.6 GHz Cortex-A720 & 4x1.92 GHz Cortex-A520) GPU Mali-G715 MC7 |
Fjöldi kjarna | Octa-Core |
Vinnsluminni | 12GB |
Geymslupláss | 128GB |
Styður minniskort | Nei |
Aðalmyndavél | Dual 50 MP, f/1.7, 25mm (wide), 1/1.31", 1.2µm, dual pixel PDAF, OIS 48 MP, f/1.7, 123˚ (ultrawide), 1/2.55", dual pixel PDAF Features Single-zone Laser AF, LED flash, Pixel Shift, Ultra-HDR, panorama, Best Take Video 4K@24/30/60fps, 1080p@24/30/60/120/240fps; gyro-EIS, OIS, 10-bit HDR |
Frammyndavél | Single 10.5 MP, f/2.2, 20mm (ultrawide), 1/3.1", 1.22µm, PDAF Features Auto-HDR, panorama Video 4K@30/60fps, 1080p@30/60fps |
Vörn | Glass front (Gorilla Glass Victus 2), glass back (Gorilla Glass Victus 2), aluminum frame IP68 dust/water resistant |
Rafhlaða | Li-Ion 4700 mAh, non-removable Charging 27W wired, PD3.0, PPS, 55% in 30 min (advertised) 15W wireless (w/ Pixel Stand) 12W wireless (w/ Qi compatible charger) Reverse wireless |
Fingrafaraskanni | Já |
Annað |