English Islenska
Velkomin á emobi.is Innskrá eða stofna aðgang.

Umsagnir viðskiptavina

 

 

Frábær þjónusta

Panatði mér nýjan síma um 11 leytið á mánudegi - með vesen aldarinnar - ekkert vesen fyrir emobi.is - redduðu mér algjörlega og ég var komin með nýjan síma um kl 13. samdægurs. Gerist ekki betra. Takk fyrir mig !!
5 af 5 stjörnum!
Kristjana

Fljót og góð þjónusta

Ég var sannarlega tvístígandi, er frekar illa við að eiga viðskipti á netinu og hafði aldrei heyrt af þessu fyrirtæki. Í stuttu máli þá gekk allt bæði fljótt og vel. Ég var ánægð með viðmót starfsmanns á staðnum og að geta talað við einhvern þar. Mér líkar vel við símann og hann var á góðu verði.
5 af 5 stjörnum!
Guðrún Ásbjörnsdóttir

Kom mér á óvart..

Ég var tvístígandi um hvort ég ætti að þora að panta hjá Emobi og hugsanlega þurfa bíða í óákveðin tíma með að fá vöruna.... en sé ekki eftir að hafa verslað hjá þeim, fyrsta flokks þjónusta og síminn kom í mínar hendur næsta dag. Hiklaust mæli með þessu fyrirtæki og fólki.. eru til sóma og spöruðu mér 15.000 :)
5 af 5 stjörnum!
Guðmundur Jónsson

Skjót og góð þjónusta, ódýrt og þægilegt að versla af Emobi.is

Skjót og góð þjónusta. Bý úti á landi, pantaði síma hjá EMOBI og hann var kominn til mín á innan við sólarhring.
5 af 5 stjörnum!
Íris

Frábær þjónusta

Snögg afgreiðsla. Frábær sími á mjög góðu verði. Mæli með Emobi
5 af 5 stjörnum!
Rúnar Reynisson

Snilldar þjónusta!

Pantaði mér síma þar sem að betri kjör voru hér á Emobi heldur en í næstu símabúð, fann mér síma sem mig langaði í og fékk það í pósti 2 virkum dögum seinna :) Mæli klárlega með Emobi!
5 af 5 stjörnum!
Eva Rún

Einfalt, þægilegt og fljótlegt.

Ég pantaði mér símna í gegnum emobi.is þar sem ég hef ekki tök á að stökkva í næstu verslun. Valdi mér síma við mitt hæfi, greiddi og fékk símann til mín í pósti að nokkrum dögum liðnum. Síminn virkar fínt, íslenskir stafir og alles. Ekkert vesen.
5 af 5 stjörnum!
Íris Björg Guðbjartsdóttir

emobi.is - Reynslan þín

Þú verður að vera skráð/ur inn til að skilja eftir umsögn. Vinsamlega smelltu hér til að skrá inn.

  • Apple
  • Xiaomi
  • Caterpillar
  • Samsung
  • Nokia
  • OnePlus
  • Motorola