Moto Tag 2 hjálpar þér að finna lykla, töskur, ferðatöskur eða annað sem þú vilt vita hvar er. Virknin er sambærileg við Apple AirTag eða Samsung SmartTag, en Moto Tag 2 er sérstaklega hannað til að virka með Android símum og nýtir Google Find Hub til að hjálpa þér að finna eigur þínar.
Moto Tag 2 er framleitt í sömu stærð og lögun og Apple AirTag, þannig að það passar í flest hulstur, festingar og fylgihluti sem eru gerðar fyrir AirTag.
Innbyggð Ultra Wideband tækni getur gefið mjög nákvæma stefnu og fjarlægð þegar síminn styður líka UWB. Allt að 600 daga rafhlöðuending og auðvelt að skipta um (CR2032 rafhlaða, sem fylgir). IP68 vatns- og rykvörn.
















